What a Wonderful world

Sunday, October 14, 2007

Púkó pæju mamman ég



Þó maður reyni að fela það fyrir sjálfum sér að maður sé ekki títján eða rétt rúmlega nítján. Þá verður það erfiðara sem börnin verða stærri. Sigmar notar nú sömu stærð af skóm og ég og mér finnst það frekar“scary”. Ég og börnin vorum að renna úr hlaðinu í gær þegar ég mundi eftir því að veskið var inni með öllu snyrtidraslinu og ég sagðist verða að sækja það, syninum fannst það alger óþarfi “mamma ertu að reyna að vera einhver pæja” .. Já sagði mömmu pæjan og snéri uppá sig frekar vonsvikin með commentið.
Ég veit það samt vel þegar ég rugla saman Spiderman og Batman, þá er ég alveg glötuð og fæ flashback á álíka aðstæður með mínum foreldrum þegar þau héldu að Michael Jackson og Prinse væri sami maðurinn, vá hvað mér fannst þau gömul. Eins um daginn þegar börnin voru að rella um að taka mynd og ég sagði þeim að horfa bara á myndina með Gosa sem var svo reyndar Pétur Pan, þá alveg rann það upp fyrir mér að ég væri að detta inní púkó mömmu skeiðið. Svo þegar ég er að knúsa og kyssa Clöru á almannafæri fæ ég frasann frá henni “mamma ertu að grínast í mér eða…”
Þegar maður kemur þreyttur heim úr vinnu , búinn að þröngva sér í gegnum bónus og setja í eina þvottavél og finnst maður eiga það skilið að lesa aðeins blaðið kemur sú stutta "mamma er meira áriðandi að lesa blöðin en leika við dóttur sína eða "... Hvað segir maður þá ?
Sigmar er svo að æfa karatespörkin eftir göngunum allsstaðar þessa dagana og gáði ekki alveg radíusinn í gær þannig að púkó pæju mamman fékk bara í eitt gott spark í sköflunginn og lá eins og stunginn grís, vælandi og haldandi um fótinn, vá hvaða litli strákurinn minn er orðinn sterkur.... mamman haltrar enn. Clara fer um allt í handahlaupum svo það má segja að maður þarf að hafa sig allan við að verða ekki fyrir alskonar fótum og handleggjum sem sveiflast um heimilið. Ég veit ekki hvort ég hafi bara haldið að þessir fætur og handleggir yrðu bara áfram alltaf litlir eða hvað... Svo líka hef ég fundið fyrir því að við þurfum stærri íbúð með svona “fullorðnari” börn, það er alveg ótrúlegt en satt að það fer meira fyrir þeim á alla kanta, nema þegar þau sofa, sem betur fer þarf maður ekkert að vakna með svona stórum börnum enda held ég að púkó pæju mömmur þurfi allan sinn svefn til að halda hrukkunum frá.

8 Comments:

  • Það er ansi satt hjá þér að smám saman eftir því sem tíminn líður þá er maður farinn að minna á foreldra sína... Og vá hvað maður ætlaði sko ekki að verða eins og þeir.. hehe...
    En já tíminn flýgur og litlu krúttin okkar eru orðnir að hálfgerðum unglingum.. Við verðum búnar að ferma áður en við vitum af!!! KRÆST.......

    By Anonymous Anonymous, at 7:12 AM  

  • Híhí...það er ástand á heimilinu. Mér finnst svo ótrúlegt að Sigmar og Clara séu farin að segja svona hluti. Ég sé Sigmar ennþá fyrir mér ljóshærðan, brúnan í Supermannáttgalla og Clöru nýkomna frá Bahamas. Það er aðallega scary hvað tíminn líður hratt.....og já....við erum að verða eins og foreldrar okkar. :) Úff

    By Anonymous Anonymous, at 12:32 PM  

  • Þetta var ég....Olga Björt ;)

    By Anonymous Anonymous, at 12:32 PM  

  • Þessi börn eru alveg yndisleg. Kannast vel við það að vera orðin púkó hjá barninu. Man líka svo vel hvernig mér fannst foreldrar mínir þegar ég var á þessum aldri, fannst þau ógeðslega gömul og hallærisleg :) En mér finnst við mjög unglegar.
    Kveðja
    Kristín Inga

    By Anonymous Anonymous, at 1:59 PM  

  • Ohh þær eru svo boring þessar "þú ert ekki lengur títján" vísbendingarnar! Ég áttaði mig t.d. á því um daginn að dóttir hans Bjössa er orðin 15 ára og því er það raunhæfur möguleiki að ég gæti orðið skáamma eftir 3-5 ár (vil ekki hugsa til þess að það gæti gerst fyrr hehe) TOPPIÐ ÞAÐ!!!

    Beta GAMLA sem fékk eina hrukku við þessa uppgötvun ;)

    By Anonymous Anonymous, at 1:33 AM  

  • hahaha það er svo gott að eiga þjáningasystur, love you !!!

    By Blogger Bella Blogg, at 2:42 AM  

  • Ég held að þú sért safe, svo lengi sem þú ferð ekki í gallabuxurnar sem skreyttu þessa síðu hér fyrir nokkru......

    By Anonymous Anonymous, at 2:57 PM  

  • jæja, koma svo og skrifa blogg


    meira blogg!! Beggublogg!!!, sakna bloggsins þins

    kv Heiða E

    By Anonymous Anonymous, at 7:23 AM  

Post a Comment

<< Home