What a Wonderful world

Tuesday, August 21, 2007

Afhverju.. Afhverju..



Afhverju .....þegar maður er kominn útúrtaugaður lengst inní búð þurfa börn endilega að fara á klósett, er það eitthvað geðheilsu test ? Þá gengur mar búðina aftur til baka eins og útþanin blaðra, skilar því sem komið var í körfuna og treðst inná morkið salernið. Þar tek ég upp sýklahræddu poppstjörnuna á þetta og opna með erminni af peysunni af því ég sé fyrir mér alla sem hafa komið þarna við, misþrifalegt.. ég meina hver hefur ekki séð þáttinn ALLt í drasli, fólk sefur í hörðum litlum kókoskúlum sem er svo bara úrgangur frá hundafjölskyldunni sem sefur á milli. Jammí...
En allavega..þetta var staðan í gær, einn af síðri dögum ársins. Skólarnir eru nefnilega að byrja og innkaupalistinn kom á föstudaginn. Ég reyndi við tvær búðir sem hafa auglýst ódýrari ritföng og guð minn góður ég ákvað að borga frekar það sem afslátturinn stóð fyrir, ég sá mig ekki horfa í hnakkan á nánösinni sem stóð aftast í kílómetra langri röð með eitt pennaveski, það er lélegt tímakaup 300 krónur. Ég stend ekki í svoleiðis rugli. Næsti kostur var Hagkaup, passlega troðið en samt enginn geðveiki miðað við liðið sem át strokleður sem nesti þarna í hinni röðinni.
Í fyrra var ég leiðinlega mamman sem keypti bækur með engum myndum á, börnin mín eru ekki seld markaðssetningu stórfyrirtækja sem troða að þeim óhollum staðalímyndum (eða einhver svoleiðis pæling). En nú ætlaði ég að gefa smá glufu á þessu og leyfa stráknum að velja sér möppu, vera svolítið rausnaleg við peyjann. Svo hann yrði nú ekki lagður í einelti með rauðu myndalausu möppuna. En ég þurfti fljótlega að draga valið eitthvað aðeins til baka. Það sem var í boði var einhver slatti af prinsessum á hvítum hestum (sem litla systir var sjúk í), spiderman (sem er eiginlega að verða of barnalegt finnst Sigmari), brettagaur (sem mamman var mest hrifin af) og svo var svört mappa með beinagrind, hníf og blóðdropum sem að Sigmari fannst auðvitað rosa töff .
„Ekki séns Sigmar“ (sagði mamman við drenginn )
„afhverju ekki“? (spyr drengurinn)
„af því að þetta er ógeðslegt“ (svara mamman en hugsar.... af því að bara mömmur sem ala upp morðingja kaupa svona möppur)
„mamma... þetta er bara mappa“
„hehe.. „ (mamman hlær.. og setur hjólabrettamöppuna í körfuna)
(mamman með brjálað samviskubit)
„Hey ég veit....“ segir mamman.. „Við kaupum þessa hvítu möppu og búum til okkar eigin Star Wars möppu“
„YES....mamma“ (strákurinn er ánægður)
Alltaf slær maður í gegn, meira að segja þegar maður er alveg að fá taugaáfall..


„MAMMA ÉG ER SVÖNG“ (segir litla systir)
Andvarp.... eigum við að koma okkur út úr búðinni...

10 Comments:

  • Alltaf jafn úrræðagóð, frábært blogg loksins get ég commentað á síðuna þína haltu áfram að blogga
    kv Unnur

    By Blogger unnur, at 3:28 PM  

  • Heyrðu já þið verið að vera dugleg að commenta, ég sé hellings umferð á síðunni svo látið nú "heyra" frá ykkur, það er svooo gaman ;)

    By Blogger Bella Blogg, at 1:53 AM  

  • Mæli með því að versla í Hafnarfirði... Fór í rólegheitum í dag, þurfti lítið að bíða í röðinni og krakkarnir fengu sér epli sem voru gefins í búðinni. Hafnarfjörður rúlar... Ekkert Hagkaupsvesen.......hehe

    By Anonymous Anonymous, at 10:09 AM  

  • "datt" inná síðuna þína í gær.... hressilegt blogg hérna hjá þér, sem gaman er að lesa.
    Þú ert "skemmtilegur penni"
    kíki eflaust oftar við ... takk
    kv.Sirrý

    By Anonymous Anonymous, at 2:23 PM  

  • Var nokkuð sniðug í ár varðandi skólavöruinnkaupin, sendi guttann með systur sinni að versla, geng vægu gjaldi. Hún fékk skýr skilaboð um það koma ekki heim með stílabækur með ljótum hryllingsmyndum
    Hvað gerir maður ekki til þess að sleppa við þetta mynda-möppu-stílabóka-vandamál.

    By Anonymous Anonymous, at 3:32 AM  

  • Váááá hvað ég kannast við þetta klósettatriði þegar maður er nýkominn inn í búð að versla og þú lýstir líka viðbrögðunum hjá mömmunni ótrúlega vel :)
    Við Þórdís tókum líka Hagkaup á þetta, nenntum ekki að hanga í Office1 fyrir auka 300 krónur.
    Bestu kveðjur
    Kristín Inga

    By Anonymous Anonymous, at 9:18 AM  

  • Aldrei logmolla í kringum þig Berglind...ha ha ha

    Ég myndi líklega taka Hagkaup á þetta því ég meika ekki troðning og biðraðir í gulum búðum, hvað þá með krakka með sem þurfa að pissa eða eru svöng og þyrst og langar í svona og svona og svona....

    :)

    Alltaf jafn gaman að lesa pistlana þína.

    Olga Björt

    By Anonymous Anonymous, at 1:23 AM  

  • ahhh.. Það er svo gaman að ´"heyra" í ykkur elskurnar´.. takk fyrir commentin ;)

    By Blogger Bella Blogg, at 6:52 AM  

  • Hroooollur sýklahrædda ég fékk stóran hroll þegar þú lýstir vandlega hvernig þú opnar setuna með erminni íjú og hvað ganga með þessa sýkla heim og hrissta þá yfir kjötsúpuna í pottinum hahaha.

    Mætti þá benda á klósettpappírinn og hana nú fúli föndrarinn kveður að sinni
    góða nótt

    Ágústa Dröfn

    By Anonymous Anonymous, at 4:03 PM  

  • Sæl systir!
    Thú alltaf jafn gódur penni. Sé thig alveg fyrir mér í hagkaup.
    Vonandi var Sigmar ánægdur med Home Made star wars møppuna!?
    oG bíddu bara, thetta verdur enthá verra thegar Clara fer í skóla líka!
    Knús Hildur

    By Anonymous Anonymous, at 11:42 AM  

Post a Comment

<< Home