What a Wonderful world

Friday, July 27, 2007

smá vandræði....


Í vikunni buðum við Gilla bróðir Sigga í mat til okkar sem er svo sem engin stórfrétt, en aniveis þá er lljósmyndari frá Mogganum allt í einu á leiðinni til okkar að taka mynd af einhverjum rétti sem er svo í Mogganum í dag, en það er ekki það sem ég ætlaði að segja frá. Allavega þá stekkur Gilli upp og bíðst til að fara með börnin út að veiða og eitthvað, Gilli einstaklega barngóður og alltaf til í eitthvað stuð með krökkunum og tilvaldið þar sem þá yrði næði fyrir myndatökuna. Eftir tvo tíma koma þau svo heim rjóð í kinnum og æst.. og Sigmar í miklum spenningi segist vera með nýja gæludýrið okkar...og ég næ ekki að melta hugmyndina fyrr en dýrið er komið inní stofu, og það er KRABBI., ekki neinn venjulegur krabbi,, heldur Kalli Krabbi. Hann virtist nú frekar meinlaus og óframfærin en var nú samt að reyna að streðast uppúr skálinni, en ekkert gékk. Svo bara byrjar Law and order og allar græjur, börnin að tannbursta, Gilli kveður og allir í góðum fíling. Hjónin uppí rúm og bara sofið vært, allir búinir að gleyma nýja gæludýrinu.....
Daginn eftir kemur mamman fram til að undirbúa morgunmat og man allt í einu eftir Kalla. Nema hvað Kalli er bara ekkert lengur í skálinni. Jebbs.. dýrið gengur laust......
Kalli plataði okkur öll, lék sig meinlausan og veikan krabba. En í skjóli nætur hefur hann svo stokkið uppúr skálinni og flúið á braut. Það versta er að hann hefur líklega ekki komist langt, ég hef allavega ekki vitað um marga krabba á langferðalögum, og því liggur hjá mér sá grunur að kvikindið sé enn innan veggja heimilisins og endar sem einhver þurrksreyting undir rúmi einhversstaðar. .. og einn daginn á ég eftir að reka augun í líkið þegar ég á síst von á. Great !!
Þetta hefur valdið mér svo mikilli streytu að ég hef ekki sofið síðan, nema þá dreymandi um krabba, lifandi sem dauða.
Hvað gerir maður ?
Kannski verðum við bara með sallat í næsta Mogga, með sólþurrkuðum krabba... Kalla krabba...

9 Comments:

  • hahaha... snilld!

    FREE KALLA KRABBA ;)

    By Anonymous Anonymous, at 10:12 AM  

  • Jesús minn, þetta er alveg magnað.
    Þó að ég sé nú krabbi og þeir ágætir (í sushi), þá gæti ég ekki labbað um gólfið vitandi af Kalla á röltinu þar með klærnar sínar....úff

    Ég mæli með að nokkrum leiðtogum úr Grafarættinni verði hópað saman í hjálparsveitt sem boðið verður í kvöldkaffi eftir víðáttumikla innanhúsleit af Kalla, því að annars verður hann ekki bara þurrskreyting, heldur fnykur.com

    Annars, takk fyrir síðast. Gaman að hitta þig í dag. Og - frábært að þú skulir vera aftur komin í blogggír.

    Kveðja
    Olga Björt

    By Anonymous Anonymous, at 12:40 PM  

  • Jedúdda hahahaha ég er ekkert smá búin að hlæja : ) Grey Kalli krabbi ...

    Alltaf svo gaman að lesa þetta blogg þitt...

    En hvað er annars að frétta af 35 ára afmælisgjöfinni hans Binna ???

    By Anonymous Anonymous, at 4:02 PM  

  • bíddu bíddu .. hver var 35 ára afmælisgjöfin hans Binna ???

    By Blogger Bella Blogg, at 2:14 AM  

  • : ) Myndirnar þínar elskan : )

    En þar sem aldrei á að reka á eftir listafólki með verk sín ætla ég bara svona rétt og létt að minnast á hvernig gengur ? Ég bíð allavega hrikalega spennt. En usss... hann veit ekkert að þetta á að vera afmælisgjöfin hans : ) Var löngu búin að ákveða það ef þær verða reddí!

    En knús og kossar til ykkar krabbadýranna, hvað ætli Greenpeace segi um þetta?

    By Anonymous Anonymous, at 5:19 PM  

  • Wahahaha mér finnst þú taka því nett rólega að bíða eftir þurrskreytingunni, ég myndi tryllast vitandi af krabba á rölti um íbúðina!!! Vona að hann komist ekki í tojarann og bíti e-n í rassinn ;)

    Kv. Beta

    By Anonymous Anonymous, at 1:35 PM  

  • Þórey darling, alveg rétt myndirnar. Hvenær á kallinn afmæli ??
    ÉG hef líka verið að mála myndir með olíulitum, viltu ekki skoða þær líka ??

    p.s Kalli er ekki kominn í leitirnar, mig dreymdi krabbafjölskyldu ;(

    By Blogger Bella Blogg, at 2:26 AM  

  • Ég vil skoða hvað sem er. Vorum við ekki búnar að breyta um myndir frá því sem ég pantaði fyrst?
    : ) En vil ekkert vera erfið og reka á eftir þér... Binni verður thirtyfive í desember og ég var eitthvað að plana að hafa þetta gjöfina hans. HEHEH nú vita það allir nema hann : )

    En ji hvað ég er fegin að Kalli litli krabbi er fundinn... leist ekkert á þurrskreyttan Kalla.

    By Anonymous Anonymous, at 3:50 AM  

  • Ég get ekki lýst ánægju minni yfir því að bloggið sé komið á ról ;) Búin að eiga erfiða mánuði síðan í febrúar... hehehe.

    By Anonymous Anonymous, at 10:00 AM  

Post a Comment

<< Home