What a Wonderful world

Thursday, February 16, 2006

Vonbrigði ársins

Vonbrigði ársins er án efa nýji bachelorinn sem er hreint út sagt glataður gaur. Hann er eins og ofbakaður Ken með kellingahárkollu. Það er ekki séns að ég horfi á þennan þátt. Þessar vanþroskuðu ameríku bombur meiga bara kroppa úr hvor annari augun af ást fyrir mér, þær völdu manninn !!!
Annaðhvort er tappinn á brúnkukremssamning eða þá hefur hann sofið í ljósalampa frá því hann fæddist, ég get svarið það ef ég mætti svona manni í Kringlunni mundi ég fá kast. Hann er þessi týpa sem sækir konuna úr vinnu á hvítum hesti með fullan bakpoka af kókosbollum.
Gaurinn er svo mikill sykurpúði að hann er með flórsykur í hársverðinum í staðinn fyrir flösur.

Maður verður bara að horfa á eitthvað annað....hmmmmm...

6 Comments:

  • Já ég gæti ekki verið meira sammála þér. Hann er gjörsamlega glataður. Og vitið þið hvað!! íslenski bachelorinn er hættur með dömunni!!!! Þetta er allt dauðadæmt frá byrjun..... Ást á pöbbnum er málið...
    Kv. Ingunn

    By Anonymous Anonymous, at 6:56 AM  

  • Annars væri ég alveg til í að einhver myndi sækja mig í vinnuna með fullan poka af kókosbollum. Sá sem myndi gera það fengi alveg 10 prik frá mér. En hann mætti sleppa hestinum......
    Kv. Ingunn

    By Anonymous Anonymous, at 7:03 AM  

  • Wahahaha ég er í hláturskasti hérna.. hann er svo kvenlegur að hann gæti selt dömubindi....

    By Blogger Bella Blogg, at 7:17 AM  

  • HEHEHH ahahahaha ég bilast þið eruð bara fyndnar, éta brúnkuklúta æ jesús... En hann er ömurlegur það er alveg satt... get bara ekki horft á þennan þátt.

    By Anonymous Anonymous, at 2:18 AM  

  • Desperate Housewives er "hinumegin" og ég horfi bara þar!!! Finnst samt lúmskt gaman að horfa á svona ógeðslega korní þætti... það er svo gaman að fá kjánahroll!!! kv. Sigþóra

    By Anonymous Anonymous, at 4:29 AM  

  • gvöööööð hvað ég er leim... Ég eeeelska að horfa á Bachelor... Nú eru þetta þroskaðar konur um og yfir þrítugt og sumar komnar fast að fertugu! Ég bilast yfir þessu úr hlátri... Bjánahrollurinn sem skríður niður eftir bakinu er yndislegur...;) Verst að maður þarf alltaf að skipta um stöð í miðjum klíðum.. Big mistake hjá skjá einum að hafa þáttinn á sama tíða og aðþrengdar...... vá ég er lúnetik, blebleblelbe

    By Anonymous Anonymous, at 6:50 AM  

Post a Comment

<< Home