What a Wonderful world

Monday, February 13, 2006

Hvað er að vera óútreiknanlegur?

Það er sagt að ef maður reykir eina sígarettur þá styttir maður líf sitt um svo og svo margar klukkustundir. Svo ég hef verið að velta fyrir mér hvað ýmislegt annað sem maður gerir styttir líf manns um einhverjar klukkustundir eins og til dæmis að halda barnaafmæli, það hlýtur að stytta aldur manns um nokkra tíma eða eins og ein stíf verslunarmannahelgi á þjóðhátíð, með öllu svefnleysi og alles það styttir örugglega æfi manns um heila viku. Ógreiddir reikningar, umferðapirringur, þorramatur og tap hjá Íslenska landsliðinu tekur sjálfsagt sinn toll.
Nú vitum við orðið hvað það er sem drepur okkur þó svo það gangi misvel að forðast það. Hagfræðingar heims hljóta að hræðast allan heilsu áróður því það hlýtur að skapa ójafnvægi í framtíðinni, það verður ekki hægt að þverfóta fyrir gamalmennum eftir einhver ár. Fjárfestar sjá aur sinn margfaldast í hjúkrunarvörum á við þvagpoka og hægðarlyf. En aftur á móti verðum við með skoppandi ungdóm sem getur unnið þrefalt við að halda gamla fólkinu upprétt við göngugrindina, eða hvað?
Hláturinn lengir lífið segir einhversstaðar og mér skilst að það hafi verið reiknað út á vísindalegan hátt eins og þeir afbrigðilegu stærðfræði lögreglurannsóknamenn í þáttunum Numbers reikna út ALLT (og þar hefur áhugaleysi mitt á stærðfræði gjörsamlega rekið hnífinn í þann þáttinn fyrir mér). Þá kýs ég frekar einhvern töffara með sterka löngun til að verja börn eins og vinur minn í Law and order. Hverjar ætli séu stærðfræðilíkurnar á því að ég hitti hann einhverntímann?
Hvort ætli ég hafi lengt eða stytt ævi mína á að velta mér upp úr þessu? Ég er gjörsamlega óútreiknanleg. (sem er mjög gott, það er ekkert verra en að vera útreiknanlegur)
Image Hosting by PictureTrail.com

1 Comments:

  • Heilinn skoppar aldeilis í skelinni haha...Olga þetta er meiri pæling en mig óraði fyrir :)
    Kannski lokanaglinn ; sama hversu lengi eða stutt við lifum þá er það innihaldið sem skiptir máli eða hvað? Skemmtileg þjóðhátíð má alveg taka eina viku af legu á Hrafnistu eða eitt barnaafmæli er skoa andvirði margra mánaða brids á Hraunbúðum eða hvað???

    By Blogger Bella Blogg, at 5:44 AM  

Post a Comment

<< Home