What a Wonderful world

Thursday, January 26, 2006

Stundum er extra gott að koma heim

Þegar ég kom heim í gær úr vinnu var maðurinn minn búinn að taka alla íbúðina í gegn, við erum að tala um ALLT, hver einasta snitti. Engin föt eða blöð eða neitt neinsstaðar, herbergi krakkana með hverju einasta dóti vel raðað (en þau voru bæði í rúst þegar ég fór). Eldhúsið eins og ´sýningareldhúsið í Byko. Íbúðin var eins og tilbúin á sölu. Ég fékk tár í augun ég var svo hrikalega ánægð. Hann hafði verið að þessu í nokkra tíma um morguninn. Hann hefur gert þetta áður og það kemur yndislega á óvart að koma svona heim. Mest langaði mig bara til þess að taka börnin á hótel svo íbúðin gæti verið svona fín aðeins lengur. Ég speglaði mig aðeins í ristavélinni, hringdi svo í hann og söng með minni mjúku röddu fyrir hann Steve Wonder hit-lagið "I just called to say I love you......" (get svarið fyrir það að röddin var svo mjúk að það er eins og ég hafi lifað á Olivuolíu í mánuð).

7 Comments:

  • já úffff ef maður gæti bara "fryst" allt eftir svona vel heppnaða hreingerningu...:) kv.ragnajenny

    By Anonymous Anonymous, at 6:28 AM  

  • Ég verð nú að setja það hér að ég er engin sérstök söngkona,,hmmmm ég hef hæfileika annarsstaðar sem bakkar þetta upp..hehe

    By Blogger Bella Blogg, at 6:46 AM  

  • Óhh en yndislegt að hann Siggi geti komið svona skemmtilega á óvart, sé t.d. því miður ekki pabba minn fyrir mér að taka allt til nema jú ég tek það ekki af honum kannski bílskúrinn. En bætir það upp á öðrum sviðum ;)

    By Anonymous Anonymous, at 8:04 AM  

  • Uppeldið hjá þér á honum Sigga er greinilega mjög gott....
    spuring um að setja ferilinn inn á síðuna og láta okkur hinar sjá hvaða atferlismótun þú hefur notað og umbunarkerfi hefur verið í gangi...
    kk
    efs

    By Anonymous Anonymous, at 2:20 AM  

  • hehheheh....

    By Blogger Bella Blogg, at 3:15 AM  

  • við fáum nú bara konu heim sem þrífur allt og straujar nokkuð þægilegt

    By Anonymous Anonymous, at 3:34 AM  

  • Unnur snillingur..... SPEEDY PERLUR... Þetta er komið í minn uppáhalds-orðaforða..... kv.ragnajenny

    By Anonymous Anonymous, at 12:55 AM  

Post a Comment

<< Home