What a Wonderful world

Monday, October 17, 2005

..Og allir saman nú...



Afhverju þurfa allir íslendingar að fara á sama skemmtistaðinn í borginni þegar “einhver” hefur gefið það út að hann sé INN það móment (líklega sá sami og sagði öllum að kaupa bláar dúnúlpur og éta dominos) OG láta sig hafa það að standa eins og kólnuð karteflustappa í biðröð sem hvergi sést upphaf né endir á....og hvernig sem veturinn viðrar til að komast inní súrefnislaust sauna, fá drykki í andlitið og dansa upp í handakrikanum á næsta sveitta gaur, bíða svo 2 klukkutímaogþrjúkorter við barinn þangað til marr gefst upp og notar hælvopnið til að krossfesta andstæðinginn við trégólfið.
Inná klói eru svo grenjandi trúnó, mikið tissjú og brjálaðar píur lemjandi á klósetthurðar, eins og það sé svo frábært að vera inní þessum hland-ælu klefum að fólk hangi þar sér til yndisauka...jahhh nema kannski þeir sem anda að sér diskódufti...... ég sem hélt að sjónvarpsdagskráin væri léleg...

0 Comments:

Post a Comment

<< Home