What a Wonderful world

Tuesday, March 29, 2005

Bobba

.


Ég þekki konu sem fer oft í fótbolta og búðarleik með börnum.
Ég þekki konu sem er komin yfir sextugt og vinnur ennþá á við þrjár manneskjur.
Ég þekki konu sem setur strigaskó í þvottvél og söl í þurkara.
Ég þekki konu sem bakar kleinur í bala og notar þrjár pönnukökupönnur í einu.
Ég þekki konu sem sem prjónar peysu á tveimur dögum.
Ég þekki konu sem þvær lopapeysur allra í baðkarinu án þess að vera beðin um það.
Ég þekki konu sem á bara stuttermaboli og stuttermapeysur af því hún er með annað hitastig en annað fólk.
Ég þekki konu sem gerir allt fyrir börnin sín sjö og barnabörnin sautján.
Þessi sérstaka kona er tengdamamma mín !!

6 Comments:

  • Þetta er fallega sagt, það er gæfa að kunna svo vel að meta og virða tengdamóður sína, svona aðdáun er ekki oft látin í ljós og er Bobba enn ríkari að eiga þig fyrir tengdadóttur.

    By Anonymous Anonymous, at 4:31 PM  

  • Fallega sagt hjá þér Berglind, þetta er sko amma í hnotskurn. Alltaf tilbúin til að gera allt fyrir alla.

    Eigðu góðan dag
    Ágústa Dröfn

    By Anonymous Anonymous, at 7:27 AM  

  • Augljóslega mögnuð kona! Og þar sem ég er svo sein að kommenta á myndirnar að neðan þá verð ég að segja jimundur hvað börnin þín eru falleg!

    En annars, hvað heitir Bobba? Hef oft velt fyrir mér hvert væri hennar raunverulega nafn en ég hélt alltaf að hún héti "bara" Bobba þegar ég var lítil :) Kv. Elísabet

    By Anonymous Anonymous, at 7:28 AM  

  • Ég þekki konu sem veltir bíl en sér ekki ástæðu til þess að fara til læknis..:) Hef verið að velta því fyrir mér hvort þetta líkamshitastig sé ættgengt.. Benóný bróðir er svona líka.. Talandi um Benóný bróður þá situr fast í mér atvik sem gerðist þegar hann var lítill.. Bobba var í heimsókn og áður en maður vissi af var hún komin niður á fjóra fætur í einhvern svaka leik við peyjann..Ég gleymi því ekki hvað mér fannst hún Bobba eitthvað frábær þarna þar sem hún gleymdi sér alveg í leik við Benóný...kv. ragnajenny..

    By Anonymous Anonymous, at 2:06 PM  

  • Já.. Beta mín hún Bobba heitir víst Sjöfn Kolbrún Benónýsdóttir :) og það kemur mér ekki á óvart Ragna þetta með Benóný því Bobba einfaldleg kann að leika við krakka og "nennir" því alveg, hún gerir það ekki af einhverri skildu. Þetta með að vera alltaf heitt er pottþétt gena-dæmi, krakkarnir mínir eru svona bæði. Sigmar sefur oftast ber að ofan með enga sæng, svo kem ég og ætla að vera góða mamman og breiða yfir ungann þá er því bara sparkað af, ég vildi að ég hefði smá af þessu kuldaskræfan ég :)

    By Blogger Bella Blogg, at 1:12 AM  

  • Já guð hún Bobba er algert æði. Mér finnst reyndar öll þessi systkini rosalega barngóð og ólöt að leika sér við barnabörnin. Hann afi Binni var heilu dagana uppi á lofti að leika við Friðbjörn og það endaði með því að hann færði bara sjónvarpið upp svo hann missti ekki alltaf af fréttunum.

    By Anonymous Anonymous, at 11:40 AM  

Post a Comment

<< Home