What a Wonderful world

Monday, March 21, 2005

Bara ef ég hefði.....

Hefur þú velt því fyrir þér hvað viðbrögð þín við því sem aðrir eru að segja þér frá (markmið, áætlanir) skipta miklu. Af því ég var að tala um MISTÖK hérna að neðan þá er annað atriði sem hefur einnig stór áhrif á það hvað við gerum við líf okkar og það er það hvernig aðrir bregðast við því sem við ætlum að gera. Í bókinni minni er þetta skýrt með lítilli froskasögu sem er einhvernveginn á þennan veg:
Einu sinni voru fimm froskar að keppa í maraþon hlaupi upp á fjallstind. Þeir settu sig í startholurnar og fjölmargir áhorfendur hópuðust að til að horfa á keppnina. Það mátti strax heyra í einum "pabba frosk" "hvað er þetta sonur er eitthvað vit í þessu, er ekki nær að nýta tímann í eitthvað annað"...Hlaupinu var startað og froskarnir hentust af stað... áhorfendur röfluðu "þvílík fásinna þeim tekst þetta aldrei" "froskar uppá fjall..síðan hvenær?" . Einn froskur af öðrum gáfust upp og hættu keppni.. Enn einn froskur hélt alveg sínu striki og náði toppi fjallsins stoltur og ánægður , reisti sig uppá afturlappirnar og fagnaði..
Hvað var það sem var einstakt við þennan frosk þannig að hann komst alveg upp og vann, jú hann var heyrnalaus og því hafði það sem áhorfendur höfðu að segja ekki áhrif á hann.
Forðist fólk sem hefur þann slæma ávana að hafa alltaf eitthvað neikvætt um það að segja sem þið viljið gera eða a.m.k lokið eyrunum fyrir því og passið að láta það ekki hafa áhrif á ykkur. Þegar við Siggi ákváðum að flytja til Bahamas var fólk með komment eins og " hva..ætlið þið að fara svona langt með barnið með ykkur og hvað...er eitthvað vit í því... " osfrv. þegar við svo ákváðum að flytja heim 2 árum seinna mjög sátt við þessa lífsreynslu var það sama fólkið sem sagði "Hva..ætliði að koma heim, þið sem hafið það svo gott úti..skil bara ekkert í ykkur...osfrv.. Eins þegar ég ákvað að gefa út bókina fékk ég komment eins og "hva....hvað ertu lærð?,, getur þú gert það .. þarf það ekki að vera eihver sem hefur....eða ...ég helt að þú mundir miklu frekar gefa út skáldsögu ..ert það ekki meira þú...osfrv..
Nokkrar af mínum bestu vinkonum hafa verið að taka nýjar stefnur með sitt líf og ég óska þeim innilega til hamingju með sínar ákvarðanir, þeim á örugglega eftir að ganga mjög vel, læra margt nýtt og þroskast sem manneskjur.
Hafiði séð töframanninn David Blane, ég sá viðtal einu sinni við hann þar sem ahnn þakkaði mömmu sinni fyrir að "samþykkja" það að hann gæti orðið töframaður í stað þess að segja " David minn það er ekkert starf að verða töframaður vertu frekar læknir eða lögfræðingur" þá sagði hún "frábært..töframaður...þú verður örugglega besti töframaður í heimi" sem hann er ..og þénar milljónir á milljón ofan.
Látið aldrei neinn segja ykkur að eitthvað sé ekki fyrir ykkur, það þekkir ykkur enginn betur en þið og því getið þið best dæmt um það, og ef það gengur ekki upp þá er enginn reynsla þannig að ekki sé hægt að læra eitthvað af henni. Fyrir utan það að þá verði þið örugglega ekki að bögga herbergisfélagann á elliheimilinu með því að tuða "bara ef ég hefði...."
.

8 Comments:

  • Þetta er einmitt það sem ég hræðist mest í lífinu.. Að vera orðin gömul kona og hugsa í sífellu um það sem ég hefði átt að gera.. Það er mikilvægt að þora og láta bara vaða..Eins og þú segir: Það versta sem getur gerst er að maður verður reynslunni ríkari.. Það er skondið hvernig fólk getur látið við mann þegar maður er að framkvæma eitthvað..Ég er t.d í einkaþjálfun og þjálfarinn minn sagði að þegar ég fer að ná árangri þá geti ég búist við því að fólk fari að segja við mig: "ertu ekki að æfa of mikið" "þú verður að passa þig á að borða" "ertu nokkuð komin með þetta á heilann" o.s.frv. hehe það verður fróðlegt að sjá...:) kv.ragnajenny....

    By Anonymous Anonymous, at 4:20 AM  

  • einmitt fengið að heyra þetta þegar í fór í átak...ömurlegt

    By Blogger Bella Blogg, at 5:17 AM  

  • Snilldarlega skrifað Berglind, og fín áminning fyrir alla. Maður á að trúa á sjálfa sig, ef maður gerir það ekki hver gerir það þá?
    Heldurðu að það verði fjör á elló, þegar við erum búnar að kafa í djúpu lauginni allt lífið. Takk fyrir fínt spark írassin.

    Heiða

    By Anonymous Anonymous, at 5:40 AM  

  • Hef litlu við þær sem kommentuðu hér að ofan að bæta - er bara alveg sammála þér og þeim. Verð þó að hrósa þér fyrir pistlana þína því það er ógurlega gaman að lesa þá! Kv. Elísabet

    By Anonymous Anonymous, at 5:02 AM  

  • Takk snúllur :)

    By Blogger Bella Blogg, at 5:10 AM  

  • Mistök eru til að læra af! Fólk sem getur ekki séð það hefur ranghugmyndir af lífinu! Allir hafa efni á kútnum! Það er heldur ekki nóg að fólk sé ekki að draga úr heldur þarf einhver líka að sína því áhuga sem maður er að gera! Ég hitti allt of mikið af krökkum í minni vinnu þar sem öllum virðist nákvæmlega sama... eað þá að fólki sé ekki sama en gleymi að segja barninu sínu frá því! Það sem skiptir máli er að maður finni að maður skiptir máli fyrir þá sem maður elskar!!! Eða er það ekki????

    By Anonymous Anonymous, at 7:03 PM  

  • Gleymdi nafninu... maður er svo vanur að það komi bara sjálfkrafa! Kv.Sigþóra

    By Anonymous Anonymous, at 4:20 AM  

  • mikið sammála Sigþóra !!!! Það er eins og fólk gefi eftir með hrós, hvatningu, snertingar og ýmislegt fleira þegar barnið eldist eins og það þurfi ekki lengur á því halda.. ..skrítið...!!

    By Blogger Bella Blogg, at 6:53 AM  

Post a Comment

<< Home