What a Wonderful world

Wednesday, January 12, 2005

Clara á afmæli í dag

Clara Sigðurðardóttir er 3 ára í dag. Hún var tekin með keisara á Sunrise Medical Grand Bahama á Bahamas rétt rúmlega eitt eftir miðnætti þann 12.janúar 2002. Siggi þurfti sjálfur að halda uppi tjaldinu svo ég sægi mig ekki skorna upp, og þarna kom þessi 16 marka stelpa, og við höfðum verið alveg viss um að við værum að fá annan strák. ""Its a GIRL" sagði Dr, Doogal fæðingarlæknir... Amma Kristrún og afi Bói biðu á Scharborogh drive með Sigmar og biðu eftir að heyra fréttirnar, þau komu svo á spítalann daginn eftir með fyrsta bleika kjólinn á litlu dömuna.
Clara er dugleg lítil kelling, snögg í hreyfingum eins og amma Bobba og hefur einnig brúnu augun úr þeirri átt. Hún elskar að taka til hendinni, fá að taka úr vél , skúra eða þurka af. Hún hefur húmorinn hans pabba síns og elskar að stríða og vera fyndinn. Hún er frökk og hræðist ekki að hoppa fram af borðum eða ganga á jafnvægisslám, hún er frekar hrædd við jólasveina og gamalt fólk á elliheimilum. Hún telur gjarnan upp þá sem hún elskar ("enghar" eins og hún segir) bestu vinkonur hennar eru; Harpa Dögg (Gríms), Agnes (Gilla) og allar stelpurnar á leikskólanum, en hún elskar líka að fara til eyja og láta frænkur sínar (Kristrúnu, Rakel, Guðrúnu, Thelmu og Sjöfn) bera sig um allt og dekra við sig. Clara er algjör prinsessa, vill alltaf vera í kjólum, með skartgripi, naglalakk og hlest með kórónu og töfrasprota. Clara er næm á aðra sem sýnir sig í því að ef ég er pirruð kemur hún til mín og vill taka utan um mig og segir "mamma ég elska þig svo mikið"
Ég er svo rík að eiga hana Clöru mína !

4 Comments:

  • Til hamingju með stelpuna....kv. Ragna Jenný

    By Anonymous Anonymous, at 4:08 AM  

  • til hamingju með skvísuna

    kveðja Heiða E

    By Anonymous Anonymous, at 2:20 PM  

  • Takk stelpur :) og Heiða takk fyrir jólakortið, ekkert smá stækkað
    kvðeja Berglind

    By Blogger Bella Blogg, at 1:58 AM  

  • Hún heldur líka mikið uppá þig, henni greinilega finnst þú hafa góða nærveru, alltaf komin upp við þig um leið og þú kemur :)

    By Blogger Bella Blogg, at 1:51 AM  

Post a Comment

<< Home