FRí .. frí.......dirrindí
Ég er að renna í frí eftir þrjá heila daga, letin er að drepa mig, ég er eina lifandi afturgangan í mannskynssögunni.
Í náttfötum með lyftiduft undir iljunum, ekki af því ég er að vonast til að lyftast eitthvað eða hækka, ég einfaldlega missti stauk af lyftidufti og það situr eitthvað ennþá þarna í undir- iljakrumpunum. ÞAð er letinni að kenna að þetta er innihaldslausasta blogg sem sett hefur verið á vefinn, lyktarlaust prump, aðvörunarmerki um andleysi mitt og hungur í FRÍ.
Nú er þörf á að hlaða batteríin, fylla tankinn, endurnærast og núllstilla. Taka sér frí frá Bachelorette, ríkisstjórninni, gsm símanum tyggjókúlutónlistarmyndböndum, háhæluðum skóm, vekjaraklukkum, umferðarteppum og 12 mánaða hausti.
Þið vitið hvað FRÍ stendur fyrir:
Farðu í Reisu frá Íslandi
(Visa rað here I come)

5 Comments:
og hvert á að fara í F.R.Í ?? :)
By Anonymous, at 7:48 AM
Barcelona og yfir til Menorca (eyja fyrir utan)svakalega spennandi, flott og allt of mikill hiti. Tengdó koma með ;)
By Bella Blogg, at 8:56 AM
Vááá æði, njótið njótið njótið og góða ferð. Við sjáumst kannski bara í ágúst, en við flytjum heim 1.ágúst.
kv Heiða
By Anonymous, at 7:41 AM
Góða ferð kæra fjölskylda.........og njótið þess að vera í fríi í sól og hita. Er alvarlega farin að huga að skreppuferð í viku til Krítar
Linda
By Anonymous, at 4:13 PM
Va´Heiða það verður gaman að sjá ykkur, hvað er eiginlega langt síðan við höfum sést?
Krít er örugglega æði Linda ;)
By Bella Blogg, at 4:50 AM
Post a Comment
<< Home