What a Wonderful world

Tuesday, June 20, 2006

Auglýsing



Auglýsing- Auglýsing-
auglýst er eftir sumri sem var lofað fyrir árið 2006.
Það sást til þess um miðjan maí mánuð, þar sem það kveikti veika von landans um hlýja strauma. Stakk hún svo af og skildi okkur eftir á ullarbrókinni, með grýlukertið niðrúr andlitinu, gluggasköfu undir hendi og hor.
Fréttir herma að kvikindið sé að leika sér að kroppum aðeins sunnar og nenni ekki að koma hingað enda búið að gera feitann samning við FL GRoup um að halda sig utan landhelginnar.
Talið er að þetta hafi engin áhrif á ferðaiðnaðinn á Íslandi þar sem ferðablaðið TRAveling Windlovers greindi frá rannsókn sem leiddi í ljós að aðeins stórfurðulegir einfarar með "forrest Gump heilkenni" vilja koma til Íslands til að hjóla sig niður og jú karlmenn í leit að kvenlegum svefngalsa byggðum á markaðslegum misskilningi og þá skiptir nesti og veðrátta engu máli.
Þessi veðrátta er að kosta heilbrigðiskerfið nokkra gáma af Prosac, íslendingar hafa byggt utan um sig viðarbox (sólpalla) í öllum görðum sem standa nú til einskis- viðurinn bara vökvaður og ekkert annað, tjaldhælarnir halda að það hafi orðið heimstyrjöld fyrir ofan kjallarann því enn hafa þeir ekki verið viðraðir og blessuð börnin eru enn í sokkabuxum og halda að þau hafi fæðst í þeim.

Ég reyndi að ná í ferðaskrifstofu í dag en það var alltaf á tali,
WHAT A SURPRISE !!!

3 Comments:

  • Hér er jú bara fínt thannig ad ég kvarta ekki! 27 stiga hiti!
    Finn samt soldid til med ykkur tharna á klakanum! Vona ykkar vegna ad sumarid komi fljótt!
    Knús Hildur og Freyja

    By Anonymous Anonymous, at 1:32 AM  

  • get svarið það, held að auglýsingin hafi borið árangur... allavega í dag....
    "over my dead body"
    ekki 27 stiga hiti ennnnn...

    By Blogger Bella Blogg, at 2:35 AM  

  • Þetta er bara svindl!!!!!!!!! grát og snökt..................Sem betur fer er sæmó veður í dag... Friðrik Benóný er búinn að vera í Knattspyrnuskóla í tvær vikur og á hverjum einasta degi hefur hann farið í REGNGALLA....... Hvað er málið??????? Jebb ullarbrók er málið........

    By Anonymous Anonymous, at 7:26 AM  

Post a Comment

<< Home