What a Wonderful world

Thursday, August 18, 2005

Læri , læri, tækifæri !



Ég fór að velta því fyrir mér afhverju vinstra lærið á mér væri svona mikið stærra en það hægra. Afhverju vinstra lærið á mér er eins og á heimsmeistaranum í skautaspretthlaupi (skautaspretthlauparar....þessir í aðþröngu glansgöllunum með lagskiptu lærin) enn einmitt sama daginn hafði ég farið niður laugarveginn og svo seinna klikkast í umferðarteppunni upp í Hafnarfjörð klukkan 18 hundruð, það var einmitt svarið ... að standa stöðugt með fótinn á kúplingunni er að gera okkur borgarbúa stökkbreytt, sjáið fyrir ykkur plakatið með þróun mannsins þar sem apinn reisir úr sér og gengur og verður svo með hrikalegt vinstra læri, skakkur og asnalegur, þetta er þróunin, nema kannski hjá þeim sem eru á sjálfskiptum bílum þeir verða með feitt, appelsínu vinstra læri.

Djööö.. mig er bara farið að langa í læri......þ.a.s ..lambalæri....með brúnni sósu og kartöflum... það eru sumir sem segja að ég sjái mat í öllu,,það er sennilega rétt....hmmm....

...og gamaldags grænar baunir.....

5 Comments:

  • biddu, biddu.. er seinni parturinn eins konar andsvar vid minum skrifum?
    Ekki minnast a lambalaeri, eg fer ad slefa.
    :)

    By Blogger -(..)-, at 4:26 AM  

  • MMM grillað læri með hvítlaukssósu, namm namm. Verðum að fara að hittast og grilla eitt stykki :)
    Kv. Ingunn

    By Anonymous Anonymous, at 5:51 AM  

  • andsvar ... uuu veit ekki.. ég gæti verið grænmetisæta ef ég hefði Sollu síhressu ´sem personal chef, siggi mundi líklega samt banna henni að koma nálægt nýju gasvélinni og hún mundi gefast upp á að grilla brokkolí á svölunum hjá mér og segja upp, ég gæti líka ALDREI sleppt Kalkúninum hennar mömmu um jól eða lunda á þjóðhátíð fyrir þurrskreytingu.. NEVER....
    en ...Never say Never

    By Blogger Bella Blogg, at 8:10 AM  

  • tek það samt fram að ég borða mjög oft á Grænum kosti og Maður lifandi og finnst það geðððððveikt gott

    By Blogger Bella Blogg, at 8:14 AM  

  • Þú mátt ekki gleyma hjúmongös þumlinum sem við verðum með eftir allt sms-pikkið! Bogna bakinu eftir langa yfirsetu við tölvu og stækkandi meðalstærð á fótum!!! Kveðja Sigþóra... p.s. liggur við að manni hlakki nú bara til að sjá næstu mynd á þróunarplakatinu!

    By Anonymous Anonymous, at 1:20 AM  

Post a Comment

<< Home