What a Wonderful world

Monday, April 04, 2005

FUGLA-ÞEMA !!!

.
Það er eitthvað ÞEMA æði að fljúga yfir landann af svo mikilli áfergju að það meiga ekki tveir menn koma saman án þess að það sé tilskipað þema. Ég var spurð um daginn hvort í brúðkaupinu yrði "þema" svo ég fór að velta því fyrir mér og flækja þessu inní skipulagið sem er by the way litaskipt "flipa" skipulag í Excel með tilheyrandi jöfnu útreikingum og meðaltalsspám sem ég er bara fjári stolt af. Þetta gæti endað í skipulagsfíkn og kostnaðinum kastað upp í marglituð súlurit og kökurit með Power piont stælum ...............og kannski bara ekki. Hef því miður ekki verið ÞESSI skipulagða hagsýna húsmóðir sem frystir matarafganga, föndrar úr gömlum mjólkurfernum og nýtir gamlar nærbuxur sem tuskur. Enn kannski er þetta upphafið ... að breytingum og ég breytist í hagsýnu, skipulögðu og ábyrgðarfullu Berglindi sem að týnir ekki lyklum og kreditkortum, pantar tíma í klippinu með fyrirvara og býr til fiskibollur frá grunni. Allt þetta sem dekrið og áhyggjuleysið hefur mótað mun vera brotið á bak aftur og ég verð ný og betri manneskja.. . Hvað varð um "þema" pælinguna, týndi henni þarna á leiðinni..hmmmmm....

3 Comments:

  • Ég sleppi því bara að skipuleggja mitt wedding og mæti í staðinn á powerpoint-sýningu hjá þér...:) Díll??? kv ragnajenny

    By Anonymous Anonymous, at 12:00 PM  

  • hehe.. já það væri sennilega smá mál að leigja fugla til að svífa um salinn og reyna svo að koma í veg fyrir að þeir skíti á matinn og gestina, uppstoppaðir lundar sennilega betri kostur Jórunn. Ragna við höfum Power point show á breiðtjaldi á Glaumbar, bjóðum foreldrum og tengdaforeldrum og nóg af sterkum drykkjum... :)
    Olga.. þvílíkur léttir að þurfa ekki að breytast í hina ábyrgðafullu.. það bara færi mér ekki...það versta er þó að siggi er svona líka..maður fer ekki langt á tveimur týndum bíllyklum eða með tveimur týndum kreditkortum

    By Blogger Bella Blogg, at 2:33 AM  

  • p.s pælið í því hvernig þessi mynd var tekin.."já svona já verið kjur einmitt svona....alveg brilliant.. Pétur dúfa aðeins upp með hökuna.. já og Dísa dúfa horfa niður....PERFECT

    By Blogger Bella Blogg, at 4:31 AM  

Post a Comment

<< Home