What a Wonderful world

Wednesday, November 01, 2006

VELGJA

Sá einhver Innlit útlit í gær (31. okt) Ásgeir brúnkuklútur Kolbeins og hans frábæru íbúð. Ef ég hef einhverntímann fengið velgju af snobbi þá var það í gær, við Siggi áttum ekki orð. ÞEgar ég kom í vinnu voru vinnufélagar mínir sem höfðu séð þáttinn algjörlega sammála. Þá var Vala Matt nú mikið mikið betri fyrir almenninginn, það verð ég nú að segja , andsk.. hafi það. Þátturinn er endursýndur á sunnudögum, svo er hægt að horfa á þetta á http://www.skjarinn.is/skjareinn/innlendir_thaettir/thattur/store126/item950/ verði ykkur að góðu ;) Þau hefðu kannski átt að hugsa þetta aðeins betur (samabr. myndina) wahhhaaaaa

8 Comments:

  • nákvæmlega það sem mér datt í hug, að senda skjá einum póst ! Sendum öll póst á innlitutlit@s1.is og copy á info@skjarinn.is dagskrástjóra skjás eins

    By Blogger Bella Blogg, at 8:00 AM  

  • Gaman að heyra frá þér á ný :)
    Sá ekki þáttinn og næ honum ekki á netinu, þarf að muna eftir honum á sunnudaginn.

    By Anonymous Anonymous, at 11:45 AM  

  • Vá maður ég var að horfa á þetta og djöfull er ég hneyksluð.... Er þetta klikkað lið????? Ógeðslegir dónar þessir snobbhanar... Það var bara ekki rassgat að þessari innréttingu, hurðirnar voru flottar og hvað í fjáranum er að því að vera með viðarrimla??? Ældi á gólfið??? Ábyggilega þúsund heimili á landinu með svona rimla, hurðar eða innréttingu... Oj.. ég æli á gólfið heima hjá þeim báðum.... Viðbjóðslegt snobb og þetta innslag er þáttinum til skammar... Hananú.............

    By Anonymous Anonymous, at 7:20 AM  

  • Er hætt að horfa á þáttinn, en skellti mér á netið og úff... ógeðslegt, viðbjóður... það mætti halda að þeir hefðu verið að lýsa vegavinnuverkamannaskúr? Lýsingarorðin ótrúleg, hátalarar væru líka svo ógeðslega ljótir og græjur og best að fela þetta sem mest, því fannst mér svolítið einkennilegt að hann faldi ekki þvottavélina og þurrkarann inn á baði... svona miðað við lýsingarnar.
    Ættu að skammast sín fyrir þetta.
    JYJ

    By Anonymous Anonymous, at 7:36 AM  

  • Ég setti inn betri link, hitt var á gömlu þættina ,, sorry :%

    By Blogger Bella Blogg, at 8:05 AM  

  • Var að sjá þáttinn, hvað er að þessu liði ?
    í ALVÖRU talað, ég ætla að skrifa þeim og segja mitt álit.
    Hafið þið fengið einhver viðbrögð frá þættinum ?
    Er ekkert smá hneyksluð, það mætti halda að þeir væru að gera grín en því miður er það ekki svo gott.
    Linda

    By Anonymous Anonymous, at 2:00 PM  

  • ÞESSI ÞÁTTUR ER FYNDNARI EN SOUTH PARK!! ég stappaði niður löppunum af kátínu þegar ég sá sketsinn með hr. Self Tan. Þeir hvetja hvorn annan í að vera sem ömurlegastir. En mikið líður mér betur að vita að þeir hentu út þessum ógisslea ljótu innréttingum og ógisslea vibbjósleum gardínum og hjúkket að hann þurfi ekki lengur að pissa inná þessu ógisslea vibbjóslea ælufokkingljóta-baðherbergi. Konan sem fékk að hirða innréttinguna er örugglega ógisslea fátæk eða blind eða geðveik. aufga aumingja hún. Vel af sér vikið strákar, sjáumst í Skaupinu 2006/2007.

    By Blogger -(..)-, at 3:36 AM  

  • æ hvað það er nú yndislegt að "hitta" ykkur hérna á blogginu kæru félagar, finn það núna hvers ég hef saknað frá bloggheimum, þið eruð svo ótrúlega skemmtileg og frábær !!!

    By Blogger Bella Blogg, at 1:23 AM  

Post a Comment

<< Home