What a Wonderful world

Thursday, September 15, 2005

Ný síða

Jahhh nú er kominn tími á að haga sér eins og ábyrgðarfull manneskja, strákapælingum lokið (í bili)þó gaman hafi verið og mín búin að hræra saman eins og einni heimasíðu fyrir börnin. Ég byrja bara á þeim myndum sem eru hérna í tölvunni við hendina og bæti svo smám saman við. Endilega kíkið á molana mína og Commentið (það er svo gaman). Planið er líka að vera dugleg að setja inn gullkorn þau koma nú nokkur daglega.

http://barnaland.is/barn/37460


Sigmar og Clara saman (nokkurnvegin fyrir miðju)
Þetta er frábær mynd, ekta íslenskt sumar og leikskólinn að reyna að vera með pylsupartý. Krakkarnir dúðaðir, skítugir, þreyttir og umfram allt glorhungraðir. Yndisleg mynd :)

3 Comments:

  • Víhú, ég ætla sko að kíkja á barnasíðuna :)
    Er einmitt að velta fyrir mér hvort ég eigi að setja upp svona síðu þegar dúllumúsin fæðist... Annars sá ég á Barnalandi að það eru ótrúlega margir með síður fyrir ófædd börn sín en það sérstakasta af öllu voru tvær síður sem ég sá sem voru fyrir "börn" sem enn eru ekki komin undir!!! Er ekki að grínast en þar má finna fréttir um egglos mæðranna og upplýsingar um hvort heimaleikfimi mánaðarins hafi skilað tilskyldum árangri.. Soldið spes fannst mér :) Kv. Beta

    By Anonymous Anonymous, at 6:07 AM  

  • Beta hvar fannstu þetta???!!!??? nauðsynlegt að fá að sjá þetta með eigin... lol kv. Sigþóra

    By Anonymous Anonymous, at 4:15 AM  

  • sounds "desperate" to ME..

    By Blogger Bella Blogg, at 4:18 AM  

Post a Comment

<< Home