What a Wonderful world

Tuesday, November 28, 2006

kanntu að versla ?

Jæja búin að draga aldeilis lappirnar með þessa síðu mar.
Ég vaknaði með andfælum um daginn þegar það braust inn til mín maður og skreið upp í rúmið mitt, en eftir að ég hafði nuddað almennilega augun , fannst mér ég kannast við kauða.. svo skaust upp í huga mér; jújú ég er gift þessum og lagði svo þungt höfuðið aftur á koddann. Já Siggi er semsagt kominn heim og lífið er að snúast í “eðlilegar”horfur. Ég er ákveðin í því að vera gift Sigga alveg sama hversu leiðinlegur hann verður í framtíðinni því róðurinn heima fyrir er andsk. erfiður án hanns. Svo er að styttast í New york, svo ég neyddist til að byrja á jólaskrautinu um helgina til að bæta upp þann tíma sem ég verð úti og við kjellurnar í vinnunni erum farnar að skoða gerfihnattamyndir af borginni á netinu svo við áttum okkur betur á fjarlægð milli einstakra verslanna, en það hefur farið fram svo kallað “pre”shopping sem þýðir á íslensku for-verslun. Þá er surfað á netinu og pantað í bílhlössum og sent á hótelið, þannig gefst betri tími í það sem kallast Self shopping en það er eingöngu verslun á sjálfið, hitt þarf nenfilega ekki að máta. Námskeiðið verslun 101 er kennt heima hjá mér fyrsta virka dag eftir nýtt kortatímabil, skráning á heimasíðunni, eina sem þarf að koma með er; gild kredit og debitkort og seðlar (pappírpeningarnir ,, ææ þeir koma í mörgum litum eftir upphæð, spurðu mömmu þína). Námskeiðinu er skipt upp í þrjá flokka;

Hópefli 1; Ekki hræðast það að versla mikið, umræður og hvatningaróp; þú getur verslað,þú getur verslað, dáleyðsla á eyðsluhömlum sem hafa myndast í undirsjálfinu.

Kerfisbundin verslun; að kaupa í búntum, kaupa frammí tímann, að flytja verðmiða á milli. Hvernig skíta á út vörur til að fá afslátt. Seld eru tæki til að klippa af þjófavarnir.

Eftirfylgni; hvernig þú eyðir sönnunargögnum og læsir heimabankanum svo makinn komist ekki á slóðina. “það sem makinn veit ekki særir hann ekki”.
Fyrirlestur frá Visa um greiðsludreifingar, hvernig hækka má heimilidir í gegnum síma osfrv.

Kaffi og kökur í boði á námskeiðinu, þjófavarnarklipparinn frír með ef þú kemur með gest.

6 Comments:

  • Var að koma frá New York og nágrenni, fórum ölll familian og það var æði, borgin er bara æði.
    Myndir og annað inn á slóðinni minni og ég ráðlegg þér að fara í Macy´s þú færð allt þar. Við vorum á æðislegum stað, á Manhattan og miðju Brodway.
    Hvenær ferð þú ?

    By Anonymous Anonymous, at 11:27 AM  

  • hæ Linda, við förum 7. des. Við höfum farið einu sinni áður til New york en það er mjög langt síðan 6 ár eða eitthvað, svo okkur hlakkar mikið til. Ég komst keki inná síðuna þína, hvað er slóðin.

    By Blogger Bella Blogg, at 1:08 AM  

  • hahaha ég mæti sko á námskeiðið en þarf þó ekkert að læra því körfurnar fyllast fljótt og örugglega hjá mér en vil bara alls ekki missa af kaffi og kökum :)

    bestu kveðjur

    By Anonymous Anonymous, at 3:48 AM  

  • Passaðu bara að nota alltaf sama nafnið þegar þú pantar Victoria's secret. Á Hraunbrúnina eru nefninlega send þrjú eintök af hverjum bækling (sem btw koma í næstum hverri viku!) Einn stílaður á mig, einn á mömmu og einn á PABBA!!!! ;)

    By Anonymous Anonymous, at 10:18 AM  

  • http://blog.central.is/lindfridur
    Þetta er slóðin Berglind mín og góða ferð og skemmtu þér vel í NY :)

    By Anonymous Anonymous, at 3:02 AM  

  • Berglind - vilt þú vinsamlega halda áfram að blogga :)
    Gleðilegt ár annars og takk fyrir frábært kort.

    By Anonymous Anonymous, at 3:39 PM  

Post a Comment

<< Home