What a Wonderful world

Friday, August 25, 2006

Aðal íslenska Rock-star síðan

Hæ öll !! Kíkið á AÐAL íslensku Rock star síðuna með því að smella hér

ÞAÐ munaði bara NOKKRUM TUGA atkvæða að Magni SLIPPI við B3 þessa vikuna... svo allt kjaftæði um að við séum of fámenn þjóð og bla bla að við getum hvort eð er ekki haft nein áhrif er bara rugl.


Ertu Íslendingur? Ertu með internettengingu?

Málið er að nú er strákurinn "okkar" búin að vera 2 vikur í röð í einu af 3 neðstu sætunum þrátt fyrir frábæra frammistöðu, og það eru afar miklar líkur á því að verði hann þar 3ju vikuna sé þetta búið hjá honum. Við viljum öll hjálpa honum að komast lengra, helst í úrslitaþáttinn 13. sept. Til að minnka líkurnar á því að hann verði sendur heim í næstu viku, verða allir þeir sem finnst "alveg frábært hvað honum gengur vel" en hafa aldrei gefið honum atkvæði sitt, og með því hjálpað honum, að taka á sig rögg og kjósa hann. Atkvæðagreiðslan fer fram aðfaranótt miðvikudaga á milli klukkan 02 - 06 um morguninn. Næst verður kosið aðfaranótt 30. ágúst . Nú er ekki hægt að búast við að fólk almennt vaki alla nóttina til að kjósa hann, en þeir sem á annaðborð vakna um 7 leitið til að fara í vinnu eða skóla, gætu, án þess að leggja mikið á sig, vaknað aðeins fyrr í eitt skipti í vikunni, sest við tölvuna sína, á tæknilandinu Íslandi eru allflestir með tölvu og nettengingu, og kosið á http://rockstar.msn.com/ þar er hægt að kjósa eins oft og maður hefur úthald til og kostar ekki neitt. Sérðu í anda íþróttaáhugamenn, sem hefðu tækifæri til að hjálpa landsliðinu í handbolta t.d. sleppa þvílíku tækifæri til að hjálpa þeim áleiðis !!!!!!!!! Nú erum við Íslendingar vön að styðja heilshugar við bakið á okkar fólki sem er að gera það gott á alþjóðavettvangi - svo gott fólk - brettið upp ermar og hjálpið Magna til að komast í úrslitaþáttinn, nú ef það tekst ekki getum við ekki sagt að við höfum ekki reynt !!!!!!!!!!!! Með baráttukveðjum og Magni í úrslitin þann 13.september
Endilega sendið þetta áfram á póstlista ykkar.
Leiðbeiningar um hvernig á að kjósa: http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=12321387&uid=6350663
Ath. sumir hafa lent í vandræðum með að kjósa, stundum þarf að breyta tímasvæðinu í tölvunni eða “refresha” síðuna.

5 Comments:

  • Nú verður maður bara að kjósa eins og vitleysingur...... Koma svoooo! Annars las ég á Aðal íslensku Rock-star síðunni (úff langt orð) að líklega yrðu tveir reknir heim í næsta þætti!!!!! Kjósum kallinn............

    By Anonymous Anonymous, at 9:30 AM  

  • já búum til múg -æsing. Yfirmaðurinn minn í vinnunni spurði mig hvort ég væri skild honum (fannst greinilega að það hlyti að vera ástæða fyrir þessum æsing hjá mér.) Það verður allavega kosningavaka hjá mér, bara hellt uppá hellinga af kaffi og sturtað í sig einu glasi af fitubrennslutöflum, þá er allt klárt.

    By Blogger Bella Blogg, at 1:50 PM  

  • wahhhaaa Olga bara komin með rokkara talsmátann (þessi ljóshærði engill)

    By Blogger Bella Blogg, at 3:31 AM  

  • Innilega til hamingju með 1 árs brúðkaupsafmælið elsku Berglind og Siggi. Gæfan fylgi ykkur áfram með um ókomin ár.

    p.s
    Muna svo eftir Rock Star á þriðjuadginn og kjósa og kjósa og kjósa og kjósa og......
    kveðja og knús, Linda

    By Anonymous Anonymous, at 4:52 AM  

  • Takk elsku Linda, en sætt af þér að muna það ;)
    knús

    Berglind
    p.s kjósa kjósa kjósa

    By Blogger Bella Blogg, at 8:31 AM  

Post a Comment

<< Home