What a Wonderful world

Thursday, November 24, 2005

Til hamingju kokkalandslið Íslands !!!!!



Íslenska kokkalandsliðið lauk keppni í gær í Sviss, þar sem tíu bestu þjóðum heims var boðið að keppa. Þau stóðu sig frábærlega eins og alltaf og eins og íslendingum sæmir var allt lagt í keppnina, blóð , sviti og tár.
Þegar ég ræddi við kallinn minn í gær voru þau búin að vera vakandi í 36 tíma, gjörsamlega örmagna á líkama og sál, þar sem ekki var hægt að gefa sér tíma í að hvílast. Þau fengu silfur fyrir heita og kalda matinn, það þýðir þó ekki annað sæti, þar sem fleiri geta fengið silfur, en frábær árangur og sá besti til þessa.
Sökum smægðar þjóðar okkar og oft þá skort á fjármagni í svona keppnir þurfa meðlimir íslenskra landsliða oft sjálfir að fjármagna svona keppnir með fjáröflunum og styrktaraðilum Ein af þeim leiðum má nefna bókina landsliðsréttir Hagkaupa, glæsileg bók sem mikil vinna liggur að baki. Þó landsliðið hafi aldrei haft meiri meðbyr og nú í styrkjum kemst það ekki nálægt því hvað aðrar þjóðir hafa með sér í svona keppni. Aðrar þjóðir hafa oft kokka sína á fullum launum, eru með markaðsstjóra, kynningarstjóra og jafnvel sálfræðing fyrir liðið á meðan lið eins og íslendingarnir gera allt sjálfir, þar á meðal búa til matseðlabók, þýða hana á ensku, allt skipulag sem er heilmikið, sem m.a. felur í sér að útvega ljósamenn og þema-skraut fyrir borðið, áhöld og allt sem fylgir, í sínum eigin frítíma eftir að þeir koma heim úr vinnu á kvöldin. Svo þetta snýst ekki "bara" um að elda góðan mat. Ég held að ef þeir hefðu kost á því að gera eins og hin liðin, að einbeita sér engöngu að matnum og eyða öllum sínum kröftum í hann kæmust hin liðin ekki með tærnar þar sem þeir hafa hælana. Því að þó þau séu sjálfir sínir þjálfarar, markaðsstjórar, kynningarstjórar, sálfræðingar, þýðendur, blómaskreytingamenn og allt annað eru þeir í fremstu röð fyrir ótrúlega færni, endalausar fórnir, gífulegan metnað, stolt og hungur í að vera meðal þeirra bestu.

sjá umfjöllun og myndir á:
http://www.chef.is

4 Comments:

  • Vá til hamingju med flottan árangur. ég hef jú alltaf vitad ad Siggi væri besti kokkur í heimi, thannig ad svo lengi sem hann er í landslidinu, thá getur thetta ekki klikkad.
    Mundu bara Berglind, ad á bak vid duglegan og mikid vinnandi mann, stendur kona, sem er gulls virdi!
    Til hamingju aftur Berglind mín, med kallinn, og audvitad innilega til hamingju Siggi minn.! :o)
    Kvedja frá danaveldi!
    Hildur

    By Anonymous Anonymous, at 3:36 AM  

  • Til hamingju með Sigga og silfrið mér finnst það bara frábært hjá þeim. Bókin er líka æði og humarrétturinn hans Sigga er GEGGJAÐUR nammm. Hann á allar flottustu uppskriftirnar í þessari bók allavega flestar svo að ég sé ekki einum of mikil sleikja hehehehe

    By Anonymous Anonymous, at 8:55 AM  

  • Þetta eru bara snillingar.... Það væri gaman að borða einhvern tímann á Vox þegar aðalkallinn er að vinna...:) Skilaðu hamingjuóskum til Sigga..
    kv. ragnajenny

    By Anonymous Anonymous, at 1:50 AM  

  • Heyrðu það er rétturinn á blaðsíðu 41 hann er hrikalega góður. namm....

    By Anonymous Anonymous, at 3:05 PM  

Post a Comment

<< Home